Vindorka er hluti af lausninni

Stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum.  Stefnt er að 55% samdrætti í losun til ársins 2030 og kolefnishlutleysi 2040.

Þegar slík markmið eru sett þá vaknar spurningin hvernig náum við þessum markmiðum?

Staðan

Til að átta sig á stöðunni þá er rétt að skoða losun koltvísírings (CO2) frá íslensku hagkerfi.  Vegna Covid áhrifa þá er rétt að miðað við því sem næst eðlilegt ástand og því verður árið 2018 fyrir valinu. Stærstu aðilarnir í losun koltvísírings innan hagkerfis Íslands árið 2018 á ársgrundvelli eru flugsamgöngur annars vegar með um 2.384 þúsund tonn og hins vegar framleiðsla málma með um 1.769 þúsund tonn, sjá mynd.

Nú þegar áhrifa Covid gegnir ekki lengur þá stefnir allt í að losun koltvísíríngs verði svipuð á næstu árum.

Hver er þá lausnin?

Ljóst má vera af þessu að lausnin hlítur að beinast að þeim tveimur greinum sem losa mest.  En hvernig er hægt að gera það? 

1) Lausnin fyrir flugsamgöngur er þekkt en hún felst í íblöndun svokallaðs Synthetic Aviation Fuel (SAF) í þotueldsneyti sem minnka á kolefnisfótspor flugs umtalsvert.  Evrópusambandið hefur sett íblöndunarkvóta nú þegar sem kallar á um 2% íblöndun frá árinu 2025 sem eykst uppí 63% árið 2050.  Talið er að SAF minnki kolefnisspor um allt að 90%, svifryk um 90% og brennistein um 100%. (Heimild: Airbus). 

Hægt er að framleiða SAF með grænni raforku til dæmis frá vindlundi Storm Orku að Hróðnýjarstöðum.  Því miður hefur stofnun ríkisins staðið í vegi fyrir vindlundi félagsins og tafið verkefnið um mörg ár.  Á sama tíma gengur mjög erfiðlega að sækja virkjunarleyfi fyrir græna raforku og er afgreiðslutími rammaáætlunar um 14 ár að meðaltali og dæmi um að verkefni hafi verið til umfjöllunar rammaáætlunar í 23 ár.

2) Hinn hluti lausnarinnar felst í að fanga útblástur frá málmframleiðslu.  Tæknilega er hægt að fanga koltvísíring frá iðnaðarframleiðslu.  Sem dæmi má nefna þá hefur Orka Náttúrunnar rekið föngunarverkefni á Hellisheiði um árabil undir merki Carbfix.  Ánægjulegt er að vita til þess að málmframleiðslufyrirtæki á Íslandi stefna nú þegar að þessu.

Á það skal bent að SAF og önnur rafeldsneyti sem mögulega verða hluti orkuskipta á Íslandi þurfa mörg hver á íblöndun koltvísírings að halda.  Föngun koltvísírings frá málmframleiðslu skapar því tækifæri fyrir málmframleiðendur á að selja koltvísíring sem fangaður er til innlendrar rafeldsneytisframleiðslu sem styður við endurvinnslu og hringrásar hugmyndafræði.

Niðurlag

Til að Íslandi nái markmiðum sínum í loftslagsmálum er mikilvægt að ráðast að rót vandans.  Slíkt býður uppá ýmis tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf og vinnur vel með markmiðum Íslands í loftslagsmálum og orkuskiptum því líklegt er að rafeldsneyti framtíðarinnar þurfi á einhverjum koltvísíringi að halda.

Vindlundur Storm Orku getur verið hluti af lausninni og getur framleitt hér heima SAF eða annað rafeldsneyti til notkunar innanlands en til þess þarf að bæta leyfisveitingaferlið verulega.  Það skýtur skökku við að stjórnvöld setji sér háleit markmið í loftslagsmálum en stofnanir ríkisins vinni svo gegn þeim aðilum sem geta komið með lausnirnar og tefji leyfisveitingaferlið svo árum skiptir.

Er ekki kominn tími til að gera getur?

Leave a comment